World-Fengur upplýsir að 54,2 % dæmdra afkvæma Þórodds frá Þóroddsstöðum eru nú með 1. verðlaun að fornu mati – með yfir 8 í aðaleinkunn.
Þetta er staðan eftir vor- og miðsumarsýningar ársins 2013. Hér verður ekki farið í neinn samanburð við aðra hesta, en ljóst er að þessi staða er mjög góð og undirstrikar vonandi skilmerkilega heiðursverðlaunin fyrir afkvæmi sem Þóroddur hlaut á liðnu ári.